semestry

Skilmálar vintorgid.is

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu vintorgid.is. Eigandi vintorgid.is VINTORG LTD. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur vintorgid.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Þessir skilmálar eru samþykktir við innskráningu eða fyrstu vörukaup eða þjónustu. 

„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. vintorgid.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefverslun sinni. vintorgid.is býður einnig kaupanda að fá vöruna senda á næstu Dropp stöð eða senda heim til sín.

2. Upplýsingar um verð

Verð í vefverslun vintorgid.is og í sendum markpóstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. vintorgid.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. vintorgid.is mun hafa samband við viðskiptavin og bjóða nýja vöru eða endurgreiðslu.

3. Persónuuplýsingar

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.

4. Greiðsla

Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:
Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.

5. Skilaréttur

Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum hjá vintorgid.is. Nema um gallaða vöru er að ræða er varan endurgreidd að fullu innan 2 mánaða frá því að neytandi varð var við galla. Víntorgið áskilur sér að sannreyna að varan sé gölluð.

6. Annað

Vintorgid.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, kaupanda verður tilkynnt um þær breytinar sem mun verða á þessum skilmálum. 

7. Varnarþing

Rísi upp ágreiningur um þessa skilmála má reka mál vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr 91/1991.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á vintorgid@vintorgid.is

Wózek sklepowy
0
    0
    Twój koszyk
    Twój koszyk jest pustyKontynuuj zakupy
      Oblicz koszty dostawy